ER EKKI KOMIÐ NÓG?
11.07.2026
Já lengi má liðin þvinga
nú láta sem ekkert sé
Verð bólgu bjöllur hringja
og bankarnir græða fé.
ÚTGERÐIN OG ÖREIGINN
Ég erfiðleikana ótal tel
Er því lítið glaður
Ei milljarðana marga fel
Eins og útgerðamaður.
NÝIR EIGENDUR LÝÐVELDISINS
Auðlindin okkar hafði haldið
er staðan varð ný
Neituðu að greiða veiði gjaldið
og urðum við því.
AÐ KYSSA VÖNDINN
Að kyssa vöndinn kunnum best
kvöl og fátækt völdum
Hjá útgerðinni þar auðurinn sést
alla milljarðana töldum.
NÚ ER ÞAÐ SÁRT
Verðbólga og vextir hækka
vandræði haugast að
Atvinnu boðum alfarið fækka
afkoman snýst um það.
Höf.
Pétur Hraunfjörð