Fara í efni

LEIÐARAHÖFUNDUR ÁN JARÐTENGINGAR

Sæll Ögmundur,
Ég vil vekja athygli þína á leiðara Morgunblaðsins, fimmtudaginn 25. febrúar. Leiðarinn nefnist “Tækifæri RÚV ohf.” Leiðarahöfundur má varla vatni halda yfir fögnuði með þetta frumvarp og telur meginkosti þess að nú geti Páll Magnússon og hans samstarfsmenn endurskipulagt fyrirtækið. Þeir geti ráðið og rekið fólk að vild eða fært til í starfi. Leiðarinn skiptir sem sagt starfsfólki RÚV í tvo hópa annars vegar samstarfsmenn Páls og hina sem hægt er að losa sig við eða færa til. Leiðarinn gerir einnig mikið úr því hve dauð og gamaldags stofnun RÚV er, en nú verði það rekið eins og fyrirtæki og það losni um þá miklu dynamik fyrir rekstur þess. Nú verði starfsfólkið ekki lengur ofverndað, en réttindi og starfsumhverfi fært til samræmist þess sem gerist hjá öðrum fyrirtækjum. Hann gerir einnig mikið úr því hve vel heppnuð hlutafjárvæðing annarra ríkisfyrirtækja hefur reynst.

Það er greinilegt að leiðarahöfundur var ekki í biðröðinni með jólapóstinn þar sem fólk úthúðaði vesalings starfsfólkinu fyrir þjónustuna og heyrði ég ýmislegt ljótt orðbragð, sem ekki er hafandi eftir varðandi póstþjónustuna. Ekki hefur leiðarahöfundur Morgunblaðsins frétt af þjónustu Símans þar sem fólk hefur orðið að bíða dögum og jafnvel vikum saman eftir einföldum viðgerðum, sem áður tók dagpart að kippa í lag, þessi þjónusta hefur fjarlægst fólkið. Ekki hefur leiðarahöfundurinn heldur frétt af sífellt versnandi þjónustu fyrrverandi ríkisbanka út um land þar sem útibú hafa verið lögð niður, útlánaheimildir útibússtjóra verið takmarkaðar, þjónusta hækkuð (ég hef frétt af að lánastofnanir eru farnar að taka allt að 5% lántökugjald og jafnvel 5% uppgreiðslugjald) og fleira í þeim dúr. Á sama tíma eru þessi fyrirtæki í bullandi útrás og græða vel.

En aftur að leiðaranum og RÚV. Í lokin segir höfundur hans að nú geti RÚV hætt samkeppni og einbeitt sér að innlendri dagskrárgerð, textun fyrir heyrnardaufa, vandaðri fréttamennsku og menningarumfjöllun. Þetta láti einkastöðvarnar hjá líða.

Ég vil einnig benda þér á ágæta umfjöllun um leiðarann í þættinum Víðsjá í RÚV 25. febrúar.

Eftir að hafa lesið þennan leiðara get ég aðeins álasað stjórnarandstöðunni fyrir eitt: Að hafa ekki sýnt meiri mótstöðu.
Með kveðju,
V.B.

þakka þér bréfið. Gjarnan hefðum við viljað stöðva þessa afleitu lagasetningu. En við erum búin standa í vegi hennar æði lengi og fullljóst að ríkisstjórnin var reiðubúin að gera nánast hvað sem var til að ljúka málinu. Ég tel mjög mikilvægt að stjórnarandstaðan skuli hafa lýst því yfir að hún myndi snúa málinu til baka ef henni tækist að mynda ríkisstjórn að afloknum kosningum.
Ég tek undir með þér að umræddur leiðari virtist skorta jarðtengingu.
Kv.
Ögmundur

 

--