LANDSVIRKJUN Í UPPNÁMI - Þegar pólitísk valdbeiting grefur undan trausti
17.11.2026
...Staðan er orðin svo alvarleg að eðlilegast er að fjármálaráðherra segi af sér þegar í stað. Jafnframt á stjórn LV að víkja og þjóðin að fá tækifæri til að endurmeta þá pólitísku forystu sem hefur leitt málið í þennan farveg. Landsvirkjun á ekki að vera vettvangur pólitísks valdatafls. Hún á að þjóna þjóðinni en ekki vera í herkví Evrópudrauma Viðreisnar. Að handvelja stjórnarmenn er afturför frá því fyrirkomulagi þegar fulltrúar kjósenda skipuðu stjórn Landsvirkjunar. Með því er horfið frá beinni aðkomu kjörinna fulltrúa að skipan stjórnar fyrirtækisins. Meint „fagmennska“ virðist þarna fyrst og fremst vera yfirvarp fyrir pólitíska miðstýringu, gerræði og valdníðslu …
Sjá nánar PDF skjal: Landsvirkjun viljandi skemmdarverk