Fara í efni

KÝS ÞIG ALDREI AFTUR!

Kæri Ögmundur.
Ég sem kaus þig í síðustu kosningum, vil hér með tilkynna þér að það mun ég ekki gera aftur. Þér er hér með sagt upp. Við trúðum því að uppgjörið við hrunið yrði heiðarlegt að allra leiða leitað til að láta þá bera ábyrgð sem ábyrgð bera. Sá sem var í forsæti fyrir hrunstjórnina og er nú fyrir dómi á auðvita að fá að svara fyrir sig og verja sig eftir bestu getu. Án dóms mun Geir H. aldrei fá uppreins æru. Án dóms mun hann alltaf vera sá sem braut af sér en vinir og klíkufélagar redduðu undan dómi. Hann mun ævinlega vera sá sem á aumingjalegan hátt slapp undan ábyrgð á afbrotum sínum. Því þú veist að þú ert saklaus þar til sekt er sönnuð á ekki við í þessu tilfelli. Hann er sekur samkvæmt rannsóknarskýrslu, samkvæmt áliti alþingis og rannsókarnefndar, samkvæmt almenningsáliti. En þú vilt hafa af honum tækiferi til að verja sig. Og hafa af almenningi sem tapaði aleigu sinni í hruninu tækifæri til réttláts uppgjörs.
Guðmundur Jónsson