Fara í efni

KRISTRÚN EKKI EIN UM AÐ DETTA Á HAUSINN

Einhvers staðar sá ég spurt á netinu hvort Kristrún Frostadóttir hefði dottið á hausinn eftir að hún slengdi því fram rétt si svona eftir að hafa hitt forstjóra  NATÓ, að við ættum að borga 70 milljarða á ári til vígbúnaðar. NATÓ heimtar sem kunnugt er vígvæðingu og vopnakaup sem aldrei fyrr. Og allir hlýða. Líka Kirstrún. Hún er ekkert ein um að hafa dottið á hausinn. Það á við um allt kratastóðið á valdastólum Evrópu og er svosem ekkert nýtt. Hagsmunaöflin í pólitík á hægri vængnum þarf ekki að fjölyrða um. Þau eru einfaldlega erindrekar fjármagnsaflanna og samsek í þessari aðförð að skattgreiðendum. Almenningur þarf að fara að hugsa sér til hreyfings, hætta að horfa til þingsins, þar er einskis að vænta. Vanhæfum pólitíkusum hefur áður verið vísað á dyr við Austrvöll. Minnumst þess. 
Haffi