Fara í efni

JEREMY CORBYN NÆSTA LAUGARDAG

Jeremy Corbyn, fyrrum leiðtogi breska Verkamannaflokksins, verður með hádegiserindi í Safnahúsinu við Hverfisgötu í Reykjavík næsta laugardag klukkan 12 í fundaröðinni, Til róttækrar skoðunar. Þar færir hann rök fyrir því hvers vegna þörf er á sósíalisma.
Frá 2021 hefur Corbyn beitt sér fyrir átaki sem hann nefnir Peace and Justice þar sem mannréttindi og friðar- og umhverfismál eru á dagskrá.
Ég hvet alla sem áhuga hafa á stjórnmálum að koma til fundarins og heyra rök Jeremys Corbyn fyrir sósíalískum lausnum í stjórnmálum.