Fara í efni

ÍSLAND FORDÆMI ÍHLUTUN BNA Í VENESÚELA!

Þakka þér fyrir skrifin um Venesúela og að syprja um afstöðu Íslands, hvort ekki standi til að fordæma afskipti Trumps og félaga. Ég er sammála þér að það verði Ísland að gera! Umhugsunarvert er að enginn á Alþingi skuli taka málið upp. VG er greinilega of upptekið við að þjóna Sjálfstæðisflokknum til að vilja vita af nokkru sem gæti ruggað bátnum. Hitt liðið er allt NATÓ fólk sýnist mér. Annað verður ekki ráðið af framgöngu(leysinu).
Jóhannes Gr. Jónsson