Fara í efni

INNRÁS

Nú er svo komið að útrás fjármálasnillinganna okkar gæti misst bikarinn til upprennandi afburðamanna í viðskiptum. Hvernig vogarðu þér Ögmundur að þvælast fyrir þjóðþrifamálum. Höfum við efni á að tefja fyrir frumlegri íslenskri nýsköpun. Nú þegar hefur tekist að koma í lóg litlum 300 ferkm af skerinu okkar og vonir vakna um að þetta sé aðeins fyrsta skrefið. Samfylkingin, flokkurinn minn, virðist skilja að hagvöxturinn er fyrir öllu, jafnvel þótt keyra þurfi út í skurð til að örva hann dálítið. En í alvöru Ögmundur - megi skilningsleysi þitt duga vel til að stöðva landráð. Það er með öllu óskiljanlegt ef Samfylkingin sem stjórnmálaafl vill stuðla að öðru eins óhæfuverki og því að opna fyrir sölu á fósturjörðinni.
Sigurjón Mýrdal