Fara í efni

Í EINKAÞOTU TIL AÐ HEIÐRA NATÓ

Vefmiðillinn Andríki er ekki sá miðill sem ég samsama mig við. En svoldið skondin fannst mér þessi tilvitnun þaðan sem barst inn á minn skjá í dag: :"Fyrir nokkrum áratugum gekk Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Keflavíkurveginn á tveimur jafnfljótum til að mótmæla aðild Íslands að NATO. Í gær sparaði hún sér ferðina suður eftir og flaug með einkaþotu af Reykjavíkurflugvelli til Rúmeníu til að heiðra sama NATO með nærveru sinni.". Umhugsunarvert og segir svoldið um hlutskipti Samfylkingarinnar, undirgefnasta NATÓ flokksins á Alþingi í dag.( http://andriki.is/ )
Kv.
Sunna Sara