Fara í efni

HVERS VEGNA ÞÖRF ER Á SÓSÍALISMA

Mér finnst það nánast liggja í augum uppi að þörf er á sósíalisma inn í pólitíkina en því fer fjarri að það finnist öllum. En óháð því hvað fólki finnst er ég þó ekki í nokkrum vafa um að fróðlegt mun mörgum þykja að að heyra rök Jeremys Corbyn fyrrum formanns beska Verkamannaflokksins um þetta efni en hann hefur lengi verið ötull talsmaður vinstri sjónarmiða í Bretlandi og í vaxandi mæli á alþjóðavísu. Hann skýrir sjónarmið sín á opnum fundi í Safnahúsinu við Hverfisgötu í Reykjavík á laugardag (23. september) klukkan 12 og eru allir velkomnir.