Fara í efni

HVER ER ÞÍN SKOÐUN?

Sæll Ögmundur.
Ég ætla nú bara að spyrja, hvaða skoðun hefur þú á verkalýðsformanninum Gunnari Páli Pálssyni og því sem hann gerði? Ég hefði viljað sjá þína skoðun hérna á síðunni.
Kv.,
Ágúst

Sæll Ágúst.
Hér vísar þú greinilega í þá ákvörðun bankaráðs þar sem GPP átti sæti að aflétta persónulegum ábyrgðum af lántökum sem áhrifafólk innan bankans hafði fengið til hlutabréfakaupa. Ég tel þetta hafa verið fráleita og mjög gagnrýniverða ákvörðun.
Kv.
Ögmundur