Fara í efni

HÉR ER NETFANGIÐ

Ég þakka aðkomu þína að málefnum Landakotsskóla og Kaþólsku kirkjunnar í tengslum við brot sem framin voru þar innan veggja fyrr á tíð. Ég er einn þeirra sem í hlut á einsog komið hefur fram í fjölmiðlum. Ég sakna þess að þekkja ekki til annarra sem hafa svipaða sögu að segja svo við getum haft samband okkar í milli. Í því getur verið fólginn ákveðinn styrkur.
Eftirfarandi er netfang mitt ef einhver sem í hlut á skyldi sjá það hér á heimasíðu þinni Ögmundur. Þætti mér vænt um að haft yrði samband við mig: isfinsen@gmail.comisfinsen@gmail.com>
Ísleifur Friðriksson