Fara í efni

GOTT!

Hanna Birna IRR
Hanna Birna IRR

Innanríkisráðherra kynnti  í dag að fyrir Alþingi yrði lagt lagafrumvarp þess efnis að fólk sem er að missa húsnæði sitt geti fengið uppboði festað fram í júlí en þá á að vera komið í ljós hvort skuldaniðurfærsla samkvæmt tillögum ríkisstjórnarinnar getur komið viðkomandi svo til góða að það komi í veg fyrir heimilismissi.
Þetta er í samræmi við þingmál sem ég hef tvívegis flutt, annars vegar síðastliðið vor og aftur nú í haust. Fljótlega eftir hrun voru sett lög sem bönnuðu uppboð tímabundið og þegar ég varð dómsmálaráðherra lengdi ég í þessu tímabundna banni.
Það er ástæða til þess að fagna þessari tillögu innanríkisráðherra og þarf Alþingi að sameinast um að gera frumvarp þessa efnis að lögum samstundis og það kemur saman á þriðjudag!