Fara í efni

GEORG SOROS SEGIR SATT!

Ögmundur...
Ég var að hlusta og horfa á viðtal við Georg Soros, sem þekkir auðvaldið betur en nokkur maður, enda virkur þátttakandi í því!
* Hann sagði að það væri númer eitt að þjóðir hafi stjórnvöld sem trúa á stjórnskipanina og stjórni samkvæmt því.
* Hann sagði að það væri lífsnauðsynlegt að öll hegðun og þá hegðun fjármálastofnanna og fyrirtækja, þar með banka, starfi samkvæmt nákvæmum og góðum lögum og reglum og að gott eftirlit tryggi að farið sé eftir þeim.  
* Georg Soros sagði ennfremur að á tímum Regans forseta Bandaríkjanna og Margrétar Thatcher forsætisráðherra Bretlands, hafi fólk tekið alvarlega trúarjátninguna eða hugdettuna um að í frjálsu markaðskerfi, mundi markaðurinn leiðrétta sig sjálfur, sjálfkrafa, sem er bölvuð della og ein ástæðan fyrir núverandi fjárhagsvandamálum!
* Hann sagði ennfremur að hann teldi að vald dollarans sem hefur verið noaður sem hálfgerður alþjóða gjaldmiðill þar með að gas og olía versluð með honum, hafi skaðast svo við hrun kapítalismans, að þjóðir munu hætta að nota hann.
Ögmundur, þetta er einmitt það sem þú hefur verið að hamra á og ég hef persónulega eins og svo margir aðrir verið hjartanlega sammála!
Úlfur