Fara í efni

Fyrirspurn til Félagsins Ísland – Palestína

Hryllilegar fréttir berast nú dag hvern frá Palestínu. Ofbeldisárásir ísraelska hersins á fólk og mannvirki vekja óhug um allan heim. Á fréttamyndum sjáum við fullorðið fólk hlaupa með særð eða látin börn, sem dauðasveitir Ísraela hafa myrt með köldu blóði. Yfir þessum voðaverkum heldur öflugasta herveldi heimsins, Bandaríkin, verndarhendi. Í morgunfréttum Ríkisútvarpsins var haft eftir Colin Powel, utanríkisráðherra Bandaríkjanna að "aðgerðir Ísraela sköpuðu vandamál"!!
Ríkisstjórnir víða um heim mótmæla en oftar en ekki á svo lágum nótum að nær væri að tala um að þær maldi í móinn. Félagið Ísland Palestína hefur staðið vaktina í mannréttindabaráttu Palestínumanna um langt árabil. Það hefur félagið gert af yfirvegun og viti. Fyrir vikið bera allir virðingu fyrir félaginu. Nú beini ég spurningu til félagsins og þætti vænt um að fá svar. Hvað er  nú til ráða annað en mótmæla hástöfum? Hvað geta Íslendingar gert? Sjálfur er ég farinn að hallast að því að rétt sé að slíta stjórnmálasambandi við Ísrael. Ekki finnst mér þetta þó liggja í augum uppi. Á meðal gyðinga í Ísrael eru fjölmennir baráttuhópar fyrir mannréttindum. Hvernig kæmi slík aðgerð þeim fyrir sjónir? Myndi þetta styrkja þá eða veikja? Hvert er mat þeirra sem til þekkja?

Viðmiðunarreglan hefur jafnan verið sú að spyrja hvað andófsöflin í ofbeldisríkjum vilji að umheimurinn geri. Þegar svart fólk háði frelsisbaráttu sína í Suður-Afríku, hvatti frelsisherinn, ANC, til þess að slitið yrði stjórnmálasambandi við Suður-Afríku og viðskiptabann sett á. Annars staðar hafa önnur sjónarmið stundum verið uppi, jafnvel að heppilegast sé að efla samskiptin við viðkomandi ríki og beita áhrifum í gegnum náin samskipti. Hvað vilja Palestínumenn – eða er yfir höfuð hægt að alhæfa um afstöðu þeirra í þessi efni? Ræðum málið. Svör óskast.