Fara í efni

FRÁBÆR SKRIF BALDURS ANDRÉSSONAR

Grein Baldurs Andréssonar, Hústákn - Táknhús, sem þú birtir hér á heimasíðunni undir yfirskriftinni, Frjálsir pennar, er hreint afbragð. Greinin er frábærlega vel skrifuð og vissulega þess virði að lesa vel. Baldur er ekki bara að tala um hús heldur þjóðfélag, þjóðfélagsbreytingar og pólitík  en hann gerir þetta á sérstakan  og óvenjulega vekjandi hátt.  Ég sendi þetta bréfkorn inn fyrst og fremst til að þakka Baldri þessi skrif og þér Ögmundur fyrir að birta þau. Verulega umhugsunarvert.
Haffi