Fara í efni

FORDÆMI SEM EKKI VÆRI KOMIST FRAMHJÁ

Þú átt heiður skilinn, Ögmundur, fyrir að hafna erindi Nubos um að fá að kaupa Grímsstaði á Fjöllum. Mér finnst lögin skýr og ef þú hefðir orðið við erindinu væri ekki hægt að neita neinum, sem vildi kaupa jarðnæði hérlendis, um eitt eða neitt nema með því að brjóta reglu jafnræðis. Hafðu þökk fyrir.
Guðvarður