Fara í efni

FÓLK EINS OG ÞÚ GERIR MÁLIÐ FLÓKIÐ

Vandamálið er einfaldlega að þú og þínir líkar í ráðuneyti þínu og annars staðar, eru svo algjörlega veruleikafyrtir hvað útlendingavandálið snertir, að þið eruð stórhættulegir íslensku þjóðinni!
Það er orðið langt gengið þegar þú bendir á EES sem afsökun fyrir furðudellunni í þessu mikilvæga máli, síðan staglast þú á að „Íslendingar" þ.e. íslenska þjóðin vilji hitt og þetta sem þér dettur persónulega í hug og röflar að hún vilji hina og þessa útlendinga til landsins.  Ég hef ekki orðið var við neina þjóðaratkvæðagreiðslu um hvernig þessum málun skuli háttað!  Þeir sem vilja ráða þessu í dag, eru ofstækisfullir pólitíkusar sem skammast sín ekki fyrir að svíkja þjóð sína fyrir persónulega geðþótta dellu!  Þegar þú ræðir um að víkka hringinn til að ná um alla heimskringluna fyrir bágstadda útlendinga, þá ert þú að ræða um í kringum 6 hundruð miljón mans, tala sem tvöfaldast hver 40 ár!  Ögmundur, er þetta landráð, geðveiki, eða hvað?
Það er endalaust talað um hagsmuni útlendinganna; að það verði að taka vel á móti þeim, skaffa þeim hitt og þetta, og gera þá að „einhvers konar samborgurum" á Íslandi og veita þeim alla félagslega aðstoð sem hægt er ásamt afætu lögfræðingum til að sækja mál á hendur íslenska ríkinu og ílengjast endalaust, auðvitað allt á kostnað íslenskra skattgreiðenda.
Ögmundur, þú segir að útlendingavandamálið sé margslungið og flókið, en málið er að það er flókið og stórhættulegt, vegna þess að fólk eins og þú, gerir það flókið og stórhættulegt!
Það er ekki að furða að illa fer þegar við höfum stórruglaða sjálfþjónandi þjóðníðinga i forustu stjórnvalda.  Maður hefði ætlast til að það fólk sem þóttist vera að berjast gegn inngöngunni í EES og síðar Schengen, eyddu tíma sínum frekar til að ganga úr þeim samkundum, en að gerast þjónar þeirra, gegn hagsmunum íslensku þjóðarinnar.
Þú hrósar fyrirrennaranum þínum sem Sjálfstæðisflokkurinn skildi eftir sig í Dómsmálaráðuneytinu, um að hún hafi byrjað á því sem þú ætlir nú að klára. 
Þú hrósar einnig Alþjóða Rauðakrossinum fyrir að halda þér við efnið fyrir hönd hagsmuna útlendingana, þó þú eigir að vita að Rauðikrossinn sem nú starfar á Íslandi sé mjög vafasamur klúbbur sem hefur frá byrjun betlað og aðstoðað útlendinga gegn hagsmunum íslensku þjóðarinnar. Fyrirtæki sem elur feita durga við stór skrifstofuborð og rekur harðvítuga fjárglæfrastarfsemi með spilavítiskössum á almannafæri til að plokka pening út úr unglingum og veikgeðja fólki, og stendur fyrir framleiðslu fjölda spilafíkla á Íslandi, líklegast til að aðstoða hagsmuni útlendinga! 
Þetta er fólkið sem þú hrósar og tekur sem fulltrúa þína!  Ég hefði ætlast til annars og betra af þér Ögmundur Jónasson!  Ég tel vera kominn tími fyrir núverandi ríkisstjórn að segja af sér vegna óvinsælda og getuleysis. Og, að þú setjist í helgan stein.  Kannski að þú getir opnað heimili fyrir útlendinga á Íslandi!  
Ég vil segja að það er hræðilegt að vita til þess að þjóðfélag vort sé komið á það stig að fólk fær ekki heimilisfrið fyrir glæpahyski, eins og er í þínu tilfelli!  Og, ekki á ástandið eftir að batna með sama og verra áframhaldi!
Kv.
Helgi