Fara í efni

FAGRA ÍSLAND – DAGUR FJÖGUR

Birtist í Fréttablaðinu 26.06.07.
Þegar Samfylkingin kynnti umhverfis- og virkjanastefnu sína undir yfirskriftinni Fagra Ísland var á það lögð áhersla að á komandi fimm árum yrði gert hlé á stóriðjuframkvæmdum á Íslandi. Á degi tvö í stjórnarsamstarfinu kom svo í ljós að álitamál varðandi Þjórsárver og Norðlingaölduveitu höfðu ekki verið til lykta leidd í stjórnarmyndunarviðræðunum. Ekki þótti það sérlega trúverðugt fyrir fólk sem gaf sig út fyrir að bera umhverfisvernd fyrir brjósti að láta Fagra Ísland sitja á hakanum í stjórnarmyndunarviðræðum. En þar með var ekki öll sagan sögð því brátt rann upp þriðji dagurinn þar sem stefna Samfylkingarinnar gagnvart vorri fögru fósturjörð kom við sögu. Það var þegar gengið var frá orkusölusamningi vegna nýs álvers í Helguvík þar sem skuldbindingar orkusala náðu aldarfjórðung fram í tímann. Ekki er vitað um neina tilburði af hálfu ríkisstjórnarinnar til að fá áformum um þessa stóriðjusamninga breytt og er það óhugnanleg vísbending um  að stóriðjustefnan sé enn á fullri ferð. Og nú er runninn upp fjórði dagurinn þar sem þjóðinni birtast öfugmæli Samfylkingarinnar um Fagra Ísland. Nú gegna þeir lykilhlutverki Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, og flokksbróðir hans í Samfylkingunni, Gunnar Svavarsson, forseti bæjarstjórnar og alþingismaður.  Samkvæmt staðhæfingum forstjóra Alcans, Michel Jacques, hafði bæjarstjórinn frumkvæði að því að bjóða Alcan að stækka álverið í Straumsvík með því að byggja á landfyllingu utan við gamla verið! Þannig yrði komist fram hjá niðurstöðu í lýðræðislegri kosningu í Hafnarfirði sem Samfylkingin segir nú að hafi bara snúist um deiliskipulag en ekki stækkun álvers! Bókanir um þetta efni í bæjarráði Hafnarfjarðar eru þess virði að kynna sér. Þegar ég segi að stóriðjustefnan sé hér enn á fullri ferð kemur á mig hik. Getur verið að hún sé að færast í aukana? Ég held að flestum hafi ofboðið belgingurinn og hrokinn í fyrrnefndum forstjóra Alcans sem í heimsókn sinni hingað til lands telur sig þess greinilega umkominn að ganga yfir land og þjóð á skítugum skónum. Hann virðist skynja að í Samfylkingunni er engin fyrirstaða. Þess vegan spyr ég, hvað næst? Ég er farinn að kvíða fyrir hinum fimmta degi í fögru Íslandi Samfylkingarinnar.