Fara í efni

ERUM LÁTIN KAUPA AUGLÝSINGAR Á BÖRNIN!

Ég vil þakka þér fyrir greinina sem birtist í sunnudagsmogganum varðandi auglýsingar á íþróttabúningum barna og RÚV reyndar líka.
Ég hef lengi pirrað mig á þessu og gert mér, ef mögulegt hefur verið, sérstaka ferð til að kaupa íþróttabúning á börnin þar sem ekki er auglýsing á. Sjálfum finnst mér alveg galið að kaupa búning á kannski 5-6000 krónur sem á stendur svo Subway, Papco, Arionbanki eða eitthvað álíka. Þetta er þó engan veginn auðvelt við að eiga enda ekki alltaf fáanlegt.
TSJ