Fara í efni

ENGINN TIL AÐ HAFA VIT FYRIR KJÁNUM

Hjartanlega er ég sammála Sunnu Söru sem skrifar hér á síðunni um það hvernig við erum gerð að viðundri með hallærisauglýsingum erlendis þar sem fólki er boðið að skrækja í míkrófón og óhljóðunum síðan útvarpað á Íslandi í þar til gerðum hátölurum. Nú er væntanlega búið að borga fyrir þetta en verður þetta rugl ekki stöðvað og lokað fyrir frekari greiðslur? Getur verið að til standi að koma upp hátölurum fyrir þessa háðung? Ef svo er þá mótmæli ég því að mínum skattpeningum verði áfram varið til þessarar niðurlægingar. Er enginn á stjórnarheimilinu til að hafa vit fyrir kjánum sem þar virðast vera á hverju strái?  
Jóel A.