Fara í efni

ENGIN SKAMMTÍMA-SJÓNARMIÐ!

Sæll Ögmundur.
Mig langaði að þakka þér fyrir að standa vörð um Íslenskar jarðir og eignir. Það bara má ekki selja allt sem að við eigum bara af því að okkur vantar pening núna. Við verðum að sýna fyrirhyggju og passa upp á allt sem að við eigum. Sérstaklega núna. Við Íslendingar erum svo fá, að það tæki ekki langan tíma fyrir okkur að verða leiguliðar í eigin landi. Vona svo innilega að eignarhald okkar á Íslandi verði áfram í okkar eigu en ekki selt til útlanda, eins og margir vilja. Jú þetta er landið okkar.
Guðmundur Davíð Gunnlaugsson