Fara í efni

ENGA HEL- HUGSUN!

Heill og sæll Ögmundur og ég tek undir með fleirum að þú ert að standa þig virkilega vel og því segjum við: Áfram Ögmundur! En víkjum þá að þeim sem ekki eru að standa sig, því í skjóli núverandi ríkisstjórnar er stóriðja heims-kapítalistanna að skauta með skít-léttum leik yfir skinhelgi ráðherra hennar. Vinstri hvað? Grænt hvað? Samfylking um hvað? Hér á augljóslega að fara í tröllatökin, "monsterin", að vald-boði AGS. Ég hef alltaf verið talsmaður þess að margt smátt geri eitt risastórt, heilbrigt og blómlegt og að okkar litlu þjóð sé það fyrir bestu, að sem flestir fái að njóta sín í frjórri og heilla-vænlegri sköpun atvinnu-möguleika og starfa. Ég hef undrað mig á því í áratugi, að ráðamenn þessa lands, þessarar þjóðar, sem er svo asskoti vel gefin, amk. í skálaræðum og í spjalli á götum, skuli aldrei detta neitt annað í hug til atvinnu-sköpunar en að fara í stóriðju-framkvæmdir. Þar er leikvöllur trölla-verktaka og stökkbreyttar verkfræðistofur og excel-skjölin og fundahöldin og nefndirnar og bruðlið og kjaftæðið er kostað af almenningi með stökkbreytt lán á bökum sínum. Bara að nefna það líka: Landsspítala-framkvæmdin verður af sama meið. Ég hef sagt það áður, að á þessum stað verði þessi gríðarlegi byggingar-massi að "monsteri" í miðbænum, með öllum sínum ógurlegum gatna-slaufum og vafningum, trúið mér. Það sér það hver heilvita maður, að þessa fyrirhuguðu framkvæmd verður að stoppa af. Bæði vegna staðsetningarinnar og eins hins að hér er verið að skera allt niður í þjónustu og starfsmannahaldi heilbrigðis-geirans. Halló! Leyfum heilbrigðri hugsun að ráða, en ekki hel-hugsun í anda AGS! Við verðum að hafna "monster" hugsun AGS! Hnykki svo enn einu sinni á því að nú er lag fyrir alla þjóðina, að hafna því að borga óreiðu-skuldir íslenskra einka-vina-væddra fjár-glæpamanna, sem enn fá að valsa óáreittir um allt valdakerfið og stofnanir ríkisins. Fyrst við fengum ekki 63-0, þá verður þjóðin öll, að segja og kjósa 100% NEI!
Pétur Örn Björnsson