Fara í efni

ENDURHEIMTUM KVÓTANN

Hárrétt ábending hjá þér Ögmundur varðandi kvótann. Auðvitað á að þjóðnýta hann eða eigum við að segja endurheimta hann.  Ætli eitthvað af kvótaveðunum liggi ekki í þrotabúi Landsbankans? Þetta þarf að kanna. Gjaldþrotarhrinan, sem nú ríður yfir, sýnir betur en nokkuð annað hve fráleitt það er að setja eignarrétt sjávarauðlindarinnar á einkahendur. Að sjálfsögðu á það við um allar auðlindir þjóðarinnar.
Haffi