Fara í efni

EKKI SELJA!

Ég vil skora á þig Ögmundur að veita ekki heimild til sölu á landeigninni að Grímsstaði á Fjöllum þannig að hún verði í einkaeigu erlendra aðila um ókomna tíð, og í óvissu um hvaða hag og not arfleiðendur kunna að hafa af landinu í framtíðinni. Veita mætti heldur heimild til byggingar- og nýtingarréttar á lóðinni samkvæmt skilmálum og fyrirætlanir sem leigulóð og í samræmi við það sem meirihluti fasteignaeiganda á Íslandi býr við, þ.e. búseta í eigin húsnæði sem stendur á leigulóð í eigu opinberra aðila. T.a.m. mætti leigutími lóðarleigusamnings vera tilgreindur sem hundrað ár og með framlengingarákvæði til samræmis við skipulag og skilmála.
Óskar Torfi Þorvaldsson