Fara í efni

EKKI HJÁSETAN - BARA ESB

Þakka þér fyrir að vekja athygli á skipulagðri rógsherferð á hendur Ásmundi Einari Daðasyni þingmanni VG. Þú gleymdir að vísu að telja upp eyjuna.is sem hefur ekki látið sitt eftir liggja yfir hátíðarnar. Það er mikill misskilningur að þetta snúist  um hjásetu ÁSD við fjárlagafrumvarpið. Mitt mat er að þetta snúist einvörðungu um andstöðu Ásmundar Einars við ESB umsóknina. Þar kemur heiftin og þar truflar hann hugsanlega inngöngu í himnaranninn sjálfan. Slíkt gengur náttúrlega ekki af hálfu sanntrúaðra.
Jóel A.