Fara í efni

EKKI AFTUR TEKIÐ!

Blessaður og sæll Ögmundur.
Ég er ánægð með að þú ferð eftir settum lögum en segir ekki að þau séu "börn síns tíma" eins og "sumir" nota óspart ef lög eru þeim eða vinum þeirra í óhag, og komast upp með það! Enn og aftur undrast maður að græðgin heltaki fólk svo, að það sjái ekki augljósar afleiðingar af óðakaupum erlendra fjárfesta á landinu okkar! Við skulum ekki halda að það sé fyrir okkur gert! Það er kominn tími til, þó fyrr hefði verið, að hugsa áður en það er framkvæmt. Við lifum það örugglega af þó við seljum ekki okkar dýrmæta land! Það verður ekki aftur tekið!
Hólmfríður Valdimarsdóttir