Fara í efni

Ég þekki til útburðarmála

Ég vil þakka þér fyrir að rísa upp gegn því að efnalítill maður yrði borinn út úr húsnæði borgarinnar. Ég heyri hvernig menn eru farnir að hamast á þér fyrir vikið og er gefið í skyn að þú viljir misrétti í kerfinu!!! Mér þótti skýringin sem þú gefur á þessum málum í greininni um Félagsþjónustuna hér á síðunni, Okkur ber skylda til að veita aðhald, segja allt sem segja þarf í þessu máli. Ég vona að sem flestir lesi þessa grein. Auðvitað eiga allir að greiða fyrir leigu og standa skil sinna skuldbindinga - en eftir getu og stundum þarf að hjálpa fólki að komast á réttan kjöl. Ég les þannig í þetta mál að einmitt þar hafi verið pottur brotinn.  Það vill svo til að ég þekki svolítið til útburðar úr húnsæði og það er meira en að segja það að ganga þannig að fólki.
Sigrún.