Fara í efni

ÉG HVET ALLA AÐ KYNNA SÉR MÁLAVÖXTU!


Í dag fór fram umræða um úrskurð Hæstaréttar að ógilda kosninguna til stjórnlagaþings. Umræðan var fróðleg um margt. Sem innanríkisráðherra hóf ég umræðuna með munnlegri skýrslu. Síðan hófust umræður. Hér er slóð á umræðurnar í þinginu: http://www.althingi.is/altext/hlusta.php?horfa=1&raeda=rad20110127T110759
Ekki vannst tími til þess á þeim 15 mínúntum sem ég hafði til ráðstöfunar að gefa eins ítarlega skýrlu og ég hefði kosið en ég lét þess getið að greinargerð yrði birt á vefsíðu Innanríkisráðuneytisns í dag með ítarlegum skýringum. Þetta var gert og er slóðin hér: http://www.innanrikisraduneyti.is/frettir/nr/26976
Mikil umræða hefur verið á vefmiðlum um málið og hefur þar margt athylgisvert komið fram. Sjá hér:
Ég leyfi mér að hvetja alla til að kynna sér þessi mál vel og þar með einnig úrskurð Hæstaréttar. Einhvers staðar sagði ég að mér þætti Hæstiréttur byggja úrskurð sinn á þröngri túlkun á lagabókstaf. Um þessi ummæli mín hef ég vaxandi efasemdir því mér sýnist úrskurður Hæstaréttar byggja á almennu mati en ekki þröngri lagatúlkun. Hef ég lýst undrun á úrskurði Hæsttaréttar og fært fyrir því rök með tilvísan í landslög. Það breytir því ekki að úrskurðinum ber að hlíta. Sá undarlegi skilningur var uppi hjá ýmsum sem tjáðu sig um málið á Alþingi í dag að ekki mætti finna að niðurstöðu Hæstaréttar og rökræða hana! Ef þessi skilningur yrði uppi værum við að fjarlægjast réttarríkið og réttinn til tjáningarfrelsis. Málefnalegri gagnrýni á úrskurð Hæstaréttar má ekki rugla saman við hitt að farið sé að úrskurðinum.  
http://eyjan.is/2011/01/27/munnleg-skyrsla-innanrikisradherra-akvordunin-kom-mer-a-ovart/