Fara í efni

EF VG FER MEÐ SJÁLFSTÆÐIS-FLOKKI ER ÉG HÆTTUR!

Góða kvöldið Ögmundur.
Frábært að fólk geti sent þér pósta eins og ég er að gera núna. Nú var ég að skoða nýja skoðanakönnun frá Gallup þar sem Vinstrihreyfingin væri orðinn næst stærsti flokkurinn ef kosið yrði nú. Myndir þú og þínir þingflokksfélagar vilja mynda alvöru vinstri stjórn með Samfylkingu eða yrði ESB í fyrirstöðu og jafnvel þið og Sjálfstæðisflokkur mynda bandalag þar sem þið eruð sammála um það að evran eigi ekki að koma nálægt landinu? Ég segi það sem vinstri maður, sósíalisti og félagshyggjumaður að ég myndi gefast endanlega upp á íslenskum stjórnmálum ef VG og Sjálfstæðisflokkur myndu fara í stjórn saman.
Ágúst Valves Jóhannesson

Mín skoðun hefur alltaf verið skýr. Ég vil ríkisstjórn til vinstri, ríkisstjórn með félagslegum áherslum og er ekki á leið inn í neinn frjálshyggjupakka með Sjálfstæðisflokknum. Það er ekki lengra síðan en sl. föstudag að 10 þingmenn Sjálfstæðisflokksins fluttu þingmál um áframhaldandi einkavæðingu!!!
Það er ekkert sem bendir til þess að þú þurfir að hætta í palotík Ágúst - alla vega ekki  af mínim völdum.
Kv.
Ögmundur