Fara í efni

DÝRASTI STJÓRNMÁLAMAÐUR ÍSLANDSSÖGUNNAR!

Sæll Ögmundur.
Þakka þér kærlega fyrir að tugta Halldór Ásgrímsson til. Hvað er hann að þenja sig nú, ég hélt að hann væri orðinn embættismaður í útlöndum og ætti ekki að blanda sér í pólitík. Halldór er einhver dýrasti og óþarfasti stjórnmálamaður sem við höfum átt og ætti að sjá sóma sinn í að þegja nú þegar afleiðingar hans eigin stefnu og hans flokks eru við það að setja hér allt á hausinn.
Var ekki Halldór aðalupphafsmaður að kvótakerfinu sem gerði örfáum stórgrósserum kleift að sölsa undir sig fiskimiðin?
Var það ekki Halldór sem tróð upp á okkur Kárahnjúkavirkjun sem setti þensluna af stað?
Var það ekki Halldór sem einkavæddi bankana og afhenti sjálfum sér og flokksmönnum sínum annan þeirra á gjafverði og á ekki bankaeinkavæðingin stóran þátt í hruni okkar nú?
Var það ekki Halldór sem með Davíð gerði okkur samsek um Írakstríðið?
Ég held það svo hann á að skammast sín og þegja. Davíð á að hætta, Geir Haarde, Árni Matthiesen, Valgerður Sverrisdóttir, Guðni og þau öll eiga að segja af sér og Samfylkingin líka ef hún ætlar að hjálpa Íhaldinu við að sitja áfram og fara í ný helmingaskipti um framtíðina.
Þið Vinstri græn verðið að stoppa þetta. Fólkið í landinu setur nú traust sitt á ykkur af því þið eruð eini flokkurinn sem ekki hefur verið í spillingunni. Ég heyri þetta á mínum vinnustað og alls staðar þar sem ég kem.
Jóhann G.