Fara í efni

DRÁPSKLYFJAR Í BOÐI ALÞJÓÐABANKANS

Nú er komið í ljós að AGS mótar stefnu uppúr kennslubókum en hvorki lífsreynslu né heilbrigðri skynsemi. Verðbólga er nú lítil sem engin á Íslandi, sé horft fram á við. Enginn rekstur skilar arði. Fjöldi fyrirtækja leggur upp laupana á degi hverjum. Samt vilja þessir ofvitar í AGS halda vöxtum háum! Það er augljóst mál að peningar sem eru lagðir inn í banka á 15% vöxtum eru niðurgreiddir af skattgreiðendum. Það er ekki hægt að ávaxta peninga um 15-20% í atvinnurekstri á Íslandi í dag. Hvernig geta bankar þá lofað slíkri ávöxtun á innlán?
Alls staðar í kringum okkur, í Bretlandi, Bandaríkjunum, í löndum Efnahagsbandalagsins, eru vextir að nálgast núllið. Það er gert til að minnka greiðslubyrði heimilanna, til að hjálpa til að koma húsnæðismarkaði í gang, til að minnka greiðslubyrði banka á innra markaði og til að gera fyrirtækjum kleift að taka lán, sem þau standa undir.
Nú er svo komið að bankar lána ekkert. Því eru háir vextir ekki að stýra ákvörðunum til framtíðar. Þeir snúa því aðallega að því að refsa þeim sem tóku lán í fortíðinni.
Allir sem vit hafa á, hagfræðingar, atvinnuveitendur, húsnæðiseigendur, fasteignasalar, sparifjáreigendur, hagsýnar húsmæður og fólk sem enn hefur heilbrigða skynsemi, er á einu máli um að háir vextir á Íslandi í dag er svo galin stefna að engum nema skólakrakkarnir sem vinna hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum hefðu getað fundið hana upp.
Ef ríkissjórnin ætlar að verja þessa stefnu, þarf eitthvað haldbærara en að vísa í krakkana hjá AGS. Ef ríkisstjórnin telur þetta vera rétta stefnu þá þarf að færa rök fyrir því. Ef ekki þá á ekki að fylgja henni.
Hreinn Kárason