Fara í efni

CHOMSKY FJALLAR UM MESTA HRYÐJUVERKARÍKI HEIMSINS

Noam Chomsky
Noam Chomsky

Að undirlagi Barak Obama Bandaríkjaforseta var bandarísku leyniþjónustunni, CIA,  falið að gera úttekt á því að hvaða marki tilraunir til að grafa undan og fella ríkisstjórnir Bandaríkjunum ekki að skapi, hefðu haft tilætlaðan árangur. Ekki reyndist unnt að finna dæmi um slíkt þrátt fyrir fjölda slíkra afskipta!

Bandaríski þjóðfélagsrýnirinn Noam Chomsky vekur á þessu athygli og vísar í nýlega grein í New York Times um þetta efni. Segir hann að fjölmiðlar ættu að horfast í augu við veruleikann og segja sem er, að Bandaríkin séu mesta hryðjuverkaríki veraldar. Rekur hann fjölda dæma - nefnir dæmi sem  New York Times tiltekur, Kúbu, Angóla og Nikaragúa og bætir við El Salvador af því tilefni að í dag, 16. nóvember, eru liðin 25 ár síðan sex jesúíta prestar voru myrtir þar af hryðjuverkasveit hersins sem Bandaríkjamenn höfðu þjálfað. Niðurstaðan er sú að oftar en ekki hafi afskipti Bandaríkjanna orðið til ills og stuðlað að gagnstæðri niðurstöðu við þá sem lagt var upp með.

Undir lok umfjöllunar sinnar er vikið að hernaðaraðgerðum sem nú standa yfir: loftárásum á ISIS í Sýrlandi. Vitnað er í nafngreinda sérfræðinga CIA sem segja að vísbendingar geti verið um að afskipti Bandaríkjamanna hefðu stuðlað að uppgangi ISIS og að loftárásirnar nú séu að þjappa saman Jabhat al-Nusra (grein úr Al Queda)  og ISIS, sem að undanförnu hafa deilt. Nú hafa þessi samtök sameiginlegan óvin - sem eru Bandaríkin og taglhnýtingar þeirra. Þar erum við Íslendingar því miður hnýttir í tagl!

Slóð á umfjöllun Chomskys er hér: http://readersupportednews.org/opinion2/277-75/26980-the-long-shameful-history-of-american-terrorism