Fara í efni

BURT MEÐ FRAMSÓKN !

Valgerður Sverrisdóttir kom fram í fréttum í kvöld. Maður hreinlega frýs þegar hún hefur upp raust sína. Hún sagði þrennt sem olli mér ónotum. Í fyrsta lagi staðfesti hún uppgjöf Framsóknar varðandi Íbúðalánasjóð. Nú yrði að horfa til framtíðar, hét það á hennar tungumáli þegar hún réttlætti að bönkunum yrði afhentur sjóðurinn. Í öðru lagi sagði hún að það væri efnahagslífinu mikilvægt að halda stóriðjustefnunni til streitu. Um þetta þarf ekki að hafa mörg orð. Í þriðja lagi sagði hún, að ef "fyrirtækin" vildu athafna sig frekar hér á landi þá væri það hið besta mál. Með öðrum orðum, ef Alcan, Alcoa og hvað þau öll heita, vilja áfram fá náttúruperlurnar ókeypis, rafmagn á útsöluprís og skattafríðindin, þá eru þessir fjölþjóðahringar velkomnir! Ég á bara til eitt að segja: Burt með Framsókn.
Haffi