Fara í efni

BRANDARI ÁRSINS?

Ég fletti upp í dagatalinu mínu til þess að sjá hvort við værum einhvers staðar nærri 1. apríl, þegar ég las um það í blöðum fyrir nokkrum dögum að hingað til lands hefði komið hópur þingmanna úr allsherjarnefnd fulltrúadeildar japanska þingsins  til að kynna sér einkavæðingu á Íslandi og læra af Íslendingum um hvernig ætti að bera sig að! Og hverjir skyldu lærimeistararnir hafa verið? Jú, það var helbláir ráðuneytisstarfsmenn og starfsmenn einkavæðingarefndarinnar, sem sett var á laggirnar í umboði þeirra Davíðs Oddssonar og Halldórs Ásgrímssonar. Skyldu japönsku þingmennirnir hafa fengið að hitta S-hópinn? Skyldi þeim hafa verið boðið á málverkasýningu Björgólfs Landsbankaeiganda, þar sem hann sýnir Kjarvalsmálverk, sem hann fékk í kaupbæti þegar honum var afhentur/gefinn bankinn? Það verður fróðlegt að fylgjast með einkavæðingunni í Japan á næstunni og sjá hve vel þingmennirnir hafa lært af íslenska einkavæðingarliðinu í Stjórnarráði Íslands. Ef þetta væri ekki alvara, þá væri þetta náttúrlega brandari ársins.
Sunna Sara