Fara í efni

HEIM MEÐ LÍFEYRIS-EIGNIRNAR

Níutíuogátta prósent tekna íslensku lífeyrissjóðanna koma úr íslensku efnahagslífi. Því sterkara sem íslenskt atvinnulíf er, því sterkari eru sjóðirnir. Þess vegna er ekki skynsamlegt að fara með fjármuni úr landi, heldur borgar sig fyrir sjóðina að byggja upp Ísland. Sjóðirnir tapa á atvinnuleysi á Íslandi. Sjóðirnir tapa ef efnahagslíf Íslands er veikt. Það gagnar ekki að fjárfesta í uppbyggingu í öðrum löndum. Það er ekki áhættudreifing. Það er bara óskynsamlegt. Það á ekki að vera erfitt að sjá þetta samhengi. Lífeyrissjóðirnir eru ekki vogunarsjóðir. Þeir eru ekki geymsla. Það er ekki óhugsandi að nota lífeyrissjóðina sem efnahagslegt stjórntæki. Flytja peninga úr landi, þegar ofhitnar og tilbaka þegar kreppir að. En þá er líka nauðsynlegt að breyta kerfinu, þannig að það verði einn lífeyrissjóður fyrir alla landsmenn og hann lúti lýðræðislegri stjórn, t.d. kosinni af Alþingi.

Björn Jónasson