Fara í efni

BEINUM REFSIAÐGERÐUM GEGN BANDARÍKJUNUM !

Mig langar að þakka þér fyrir ágætar greinar í Mbl. varðandi Mið-Austurlönd. Er ekki hægt að beita Bandaríkin viðskiptaþvingunum? T.d. með því að hætta að kaupa kók. Mætti ekki flytja íbúa Ísraels til USA?
Kær kveðja,
Sólveig

Þakka þér kærlega fyrir bréfið Sólveig. Að vissu leyti finnst mér þú hitta naglann á höfuðið, nefnilega að höfuðsökina á hernaðarofbeldinu bera Bandaríkin því í skjóli þeirra fer ísraelska hernámsliðið sínu fram gagnavart Palestínumönnum og nú einnig Líbönum. Þannig að aðgerðum okkar eigum við ekkert síður að beina gegn Bandaríkjunum en Ísrael enda var nýlegur mótmælafundur í Reykjavík haldinn fyrir utan bandaríska sendiráðið.
Með bestu kveðju,
Ögmundur