Fara í efni

BARÁTTUDAGUR GEGN EINELTI OG KYNFERÐISOFBELDI

Einelti
Einelti

Birtist í Fréttablaðinu 07.11.13.
Fréttabladid hausAllir dagar eiga að vera baráttudagar gegn einelti og kynferðisofbeldi. Morgundagurinn, 8. nóvember, er þó sérstakur að því leyti að hann hefur verið helgaður þessari baráttu, fyrir alla aldurshópa.

Við, sem undirritum þetta greinarkorn, sendum frá okkur svipaða sameiginlega herhvöt fyrir réttu ári, á þessum sama degi. Þá var annað okkar aktívisti og hitt innanríkisráðherra. Enn er annað okkar aktívisti og hitt er alþingismaður. Viðfangsefnið hefur ekki breyst: Að hvetja alla sem vettlingi geta valdið til að hringja bjöllum eða þeyta flautur, um allt land, helst um allan heim, á slaginu 13:00 í sjö mínútur, eina mínútu fyrir hvern dag vikunnar.

Þetta er hugsað sem táknrænn stuðningur við baráttuna gegn einelti og gegn þögninni sem hefur lengi umleikið einelti. Þá þögn verður að rjúfa.
Undir einelti flokkast ofsóknir, þrálát áreitni, stríðni og ofbeldi. Í einelti felst að niðurlægja, móðga, særa, mismuna og ógna manneskju ítrekað. Kynferðisofbeldi fellur hér undir, en einnig andlegt og líkamlegt ofbeldi.

Fátækt í ríku samfélagi er gróf mismunun, viðvarandi ástand eineltis því fátækt niðurlægir, særir, mismunar og ógnar manneskju ítrekað.
Einelti fær aðeins þrifist að samfélagið leyfi það, að hinir þöglu áhorfendur aðhafist ekki, horfi í aðra átt, oftast fremur vegna andvaraleysis en illvilja.

Þess vegna getum við, hvert og eitt, lagt okkar lóð á vogarskálarnar í að útrýma einelti. Það gerum við með því að hafa góð áhrif á okkar eigin umhverfi, beita ekki valdi í samskiptum, bera virðingu fyrir fjölbreytileikanum og neita að taka þátt í þögninni.

Hringjum bjöllum og þeytum horn klukkan eitt á morgun. Vekjum samfélagið, vöknum sjálf. Baráttan gegn einelti og kynferðisofbeldi veltur á okkur öllum. Sendum áskorun með rafrænum hætti á ýmsum tungumálum um heim allan og hvetjum ábúendur jarðar til virkrar þátttöku um gjörvalla heimsbyggð.

Sjá nánar: www.gegneinelti.is/

Helga Björk Magnúsdóttir Grétudóttir
Ögmundur Jónasson