Fara í efni

ÁSKRIFT AÐ FRÉTTABRÉFI

Nýlega gerði ég breytingar á heimasíðu minni sem urðu þess valdandi að margir sem höfðu verið áskrifendur að fréttabréfi heimasíðunnar duttu út af útsendingarlistanum. Ég hvet þá sem hafa áhuga á áframhaldandi áskrift, eða vilja hefja slíka áskrift, að fara inn á heimasíðu mína, ogmundur.is, og skrá sig þar. Það á að vera áreynslulaust!
Fréttabréfið sendi ég á áskrfendur annað veifið og hefur það gagnast vel til að vekja athygli á ýmsum viðburðum sem ekki eru auglýstir annars staðar. Nefni ég fundi í fundaröðinni Til róttækrar skoðunar til dæmis. Þarna kann líka að leynast efni sem einhver hefur áhuga á, en ef ekki þá er bréfinu fljóthent. Með góðri kveðju,
Ögmundur