Fara í efni

ALÞÝÐA ÞJÓÐAR GETUR EKKI BORIÐ ÁBYRGÐ Á GJÖRÐUM BROTAMANNA ÚR EIGIN RANNI

Sæll Ögmundur...
Ég er sammála þér gagnvart Pétri Péturssyni þul,. Ég kannaðist við hann og faðir minn þekkti hann vel. Eins var með Jón Múla og Árna bróður hans sem fjölskyldan þekkti einnig, allt ágætis fyrirmyndar menn!
Ég er einnig sammála ummælum þínum um Gordon Brown, sem er hefðbundinn auðvalds pólitíkus.
Ég mótmæli því hins vegar að íslensku þjóðinni,, íslenskri alþýðu, beri að greiða skaða sem íslenskir glæframenn valda, hvort sem það eru fjárglæframenn eða aðrir, frekar en við eru ábyrg gagnvart annarra þjóða mönnum. Enskum almenningi ber ekki að standa í skiluml vegna glæpa sinna glæpamanna.
Það verður að ganga að fjárglæpamönnum bankanna og svokallaðs fjármálamarkaðar sem einkavæðingin skapaði á Íslandi undir forustu Sjálfstæðisflokksins og hjálpaflokka hans, ásamt núverandi stjórnvvöldum og núverandi stjórnmálamönnum, sem jarma nú hástöfum.  Það verður að ganga í skrokk fjárglæpamannanna og viðkomandi stjórnmálamanna og láta kné fylgja kviði miskunnarlaust!  Látið Íslensku þjóðina eða íslenska alþýðu í friði, hún fær að þola nóg, saklaus af umræddum glæpum!
Úlfur