Fara í efni

AFTURHALDIÐ Í ÁFENGISMÁLUM

Fréttabladid haus
Fréttabladid haus
Birtist í Fréttablaðinu 10.03.15.
Alþingismenn sem ákafast berjast fyrir því að koma áfengi inn í almennar matvöruverslanir telja sumir hverjir að þeir séu eins konar kyndilberar framfara. Þetta er mikill misskilningur. Nánast alls staðar í heiminum eru heilbrigðisyfirvöld, forvarnar- og lýðheilsustofnanir og almannasamtök að vísa inn í framtíðina í gagnstæða átt. Öllum þessum aðilum ber saman um að það fyrirkomulag sem Íslendingar búa við sé heillavænlegt og líklegra til að skapa grundvöll að árangursríku forvanarstarfi en frekari markaðsvæðing áfengis.
Hins vegar gera allir sér grein fyrir því að gríðarlegir hagsmunir eru í húfi sérstaklega fyrir stóru verslunarkeðjurnar að komast yfir áfengissöluna. Bæði gefur hún möguleika á gróða og er auk þess talin geta örvað önnur viðskipti. Ömurlegt er til þess að hugsa að hópur alþingismanna skuli vera reiðubúinn að ganga erinda þessara hagsmuna og vinna þannig að því að við verðum skrúfuð í afturhaldsátt á þessu sviði.
Ljóst er að breytt sölufyrirkomulag myndi leiða til kostnaðarsamari dreifingar og þar með hærra vöruverðs og skal því hér haldið til haga að álagning ÁTVR er lág en ekki há. Hátt verð á áfengi er hins vegar vegna skattaálaga ríkisins, óháð söluaðila. Við afnám ÁTVR myndi og draga úr vöruúrvali, einkum í smáum verslunum á landsbyggðinni, en ÁTVR tryggir að lágmarki 150 til 190 tegundir á jafnvel smæstu sölustöðum.
Það er von að menn beini spurningum til flutningsmanna áfengisfrumvarpsins á þingi og vilji vita í þágu hverra þeir starfi þar sem þeir leggja til breytingar á kostnað heilbrigðissjónarmiða; breytingar sem hefðu í för með sér tap fyrir ríkissjóð og þar með skattgreiðendur þessa lands, minna úrval og hærra verð!
Og síðast en alls ekki síst, hvernig er hægt að réttlæta það að hunsa ráðleggingar og ákall nánast allra forvarnar- og ungmennasamtaka, Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, Landlæknisembættisins að ógleymdri ríkisstjórn Íslands sem samþykkt hefur forvarnarstefnu sem hafnar markmiðum frumvarpsins?!