Fara í efni

AFRÍKA TALAR – YOU MUST HEAR THIS VOICE!

Æ oftar gerist það að okkur berast róttækar raddir með veraldarvefnum sunnan úr Afríku; raddir sem afhjúpa kúgunar- og arðránsstefnu nýlenduveldanna, bæði gamalla tíma (hinna ervrópsku) og gamalla og nýrra tíma í bland (hins evrópska og hins vesturheimska). Minnt er á að þótt fyrrum evrópskar nýlendur í Afríku hafi flestar öðlast sjálfstæði á öldinni sem leið þá var arðráni ekki þar með lokið. Enn eru ræningjar að þótt vestrænir fjölmiðlar þegi yfirleitt svívirðuna í hel.

Merkilegum áfanga var náð í baráttu gegn evrópskum og bandarískum arðránsöflum með stofnun formlegs bandalags þriggja ríkja á Sahel svæðinu árið 2024. Sahel beltið liggur sunnan Sahara eyðimerkurinnar og teygir sig nánast yfir þvera Afríku, þúsundir kílómetra. Umrædd ríkin þrjú sem myndað hafa með sér bandalag eru Mali, Níger og Burkina Faso. Þessi ríki bundust um það samtökum að beita sér í sameiningu gegn tilraunum til valdaráns af hálfu íslamista sem tengjast Al Quaida og ISIS en ekki síður gegn vestrænum arðræningjum. Hefur þeim orðið ágengt í hvoru tveggja, að ráða niðurlögum uppreisnarafla og við að losa sig við setulið nýlenduvelda, nú síðast bandaríska hermenn frá Niger og franska frá Mali og Burkina Faso.

Rikið sem hér er staðnæmst við, Burkina Faso, heyrði til svæðis sem Frakkar lýstu sem sínu, Frönsku Vestur-Afríku, undir lok nítándu aldar og drógu síðan landamæri fram og til baka að sínum geðþótta. Þannig gekk landsvæðið sem Burkina Faso tekur nú til lengi vel undir heitinu Evri Volta (Haute-Volta). Landið er allvíðfemt, næstum þrisvar sinnum stærra en Ísland, 274 þúsund ferkílómtrar og íbuar rúmlega 23 milljónir.

Tilgangurinn með þessum orðum er ekki að fara á kaf í sögu þessa svæðis heldur vekja athygli á málflutningi Ibrahims Trarorés hershöfðingja, helsta valdamanns Burkina Faso eftir byltingu þar haustið 2022. Traroré er fæddur árið 1988 og er því aðeins 38 ára gamall. Í heimalanidi sínu er hann sagður vinsæll svo og víða í Afríku en í Evrópu og BNA er litið á hann sem varasaman í meira lagi – sem óvin.

Margoft hefur verið reynt að ráða hann af dögum.

Hér er ástæðan. Ibrahim Traroré ávarpar heiminn eftir vldatökuna 2022, 34 ára byltingarmaður og eldhugi. Evrópumenn og Bandaríkjamenn hafa gott af þvi að hlusta á þessar átta mínútur:

Many attempts have been made on Ibrahim Traroré´s life. Here is the reason:

MB_96204_85767_MA_EN_cls_IDO_Vid_Res_1920x1080