Fara í efni

AFNÁM LÍFEYRIS-SÉRRÉTTINDA

Sæll Ögmundur.
Þessi frétt mun sannarlega gleðja landsmenn. Ekki veitir af: "Þingflokkur Vinstri- grænna hefur lagt fram frumvarp á Alþingi um að afnema sérréttindi æðstu embættismanna sem kveðið er á um í hinum umdeildu eftirlaunalögum. [...] Við núverandi aðstæður í þjóðmálum væri einboðið að Alþingi tæki af skarið og kæmi sérréttindum eftirlaunalaganna út úr heiminum fyrir jól."
Það er traustvekjandi að sjá alþingismenn ganga hreint og heiðarlega til verks. Alþingi, samfélagið þarf á því að halda.
Hjörtur Hjaratarson