Fara í efni

ÆVILANGT FANGELSI FYRIR FÍKNILYFJAGLÆPI!

Ágæti Ögmundur...
Ég var að lesa greinina þína með fyrirsögninni "OKKAR DRENGUR Í FÆREYJUM" sem þú byrjar með eftirfarandi orðum: "Fíkniefni eru hræðilegur vágestur í hverju samfélagi. Þeir sem höndla með slíkan ógæfuvald sem eiturlyf eru,  eiga fátt gott skilið." Ég tel að þetta sé það eina með viti í þessari grein þinni Ögmundur!
Hitt er bara þvæla þess sem ekki veit, skilur ekki raunveruleikann eða skynjar rétt frá röngu. Ef smyglarinn,  fíknilyfjasali og dreifandi er þinn drengur, þá erum við mikið óskyldari í hugsun en ég hef gert mér ljóst. Þvælan um fíknilyfjaglæpamanninn, Kastljós og annað af þinni hálfu er ómerkileg þvæla!
Fíknilyfjaglæpamenn eiga eins og þú byrjar grein þína á með tæpri tungu, alls ekkert gott skilið. Ég er því eindregið fylgjandi að meintir fíknilyfjaglæpamenn verði með lögum lokaðir inni á meðan að mál þeirra eru rannsökuð og eru tekin fyrir dómstóla.  Síðan verður að dæma þá  þyngstu dómum sem lög leyfa.  Ég er nýkominn úr heimsókn til lands sem dæmir fíknilyfjaglæpamenn til dauða. Það hefur reynst vel og tel ég það því fullkomlega réttlætanlegt.  Þar sem við Íslendingar leyfum ekki dauðadóma, þá tel ég að varmenni sem gera sér fikn og veikleika annarra að féþúfu verði dæmd í alvöru lífstíðar fangelsi. Ég legg einnig til að slík ómenni sem fíknilyfjaglæpamenn eru, verði skylt að taka sinn lífstíðar dóm erlendis, í verktakafangelsi í Tyrklandi, Búlgaríu, Kasakstan, Rúmeníu, eða einhverju slíku fyrirmyndar þjóðfélagi!  Þetta yrði ódýrara fyrir íslenska skattgreiðendur og fíknilyfjaglæpamennirnir fengju þá meðhöndlum sem þeir eiga skilið!
Hafðu í huga Ögmundur, að glæpamenn af þessu tagi hafa gert slíkan mannskaða af sér að þeir eiga dauðadóma fyllilega skilið!
Þú mátt vita ágæti Ögmundur, að ég hef alls enga meðaumkvun með fíknilyfjaglæpamönnum, hverrar þjóðar sem þeir eru.  Þeir eru öllu verri ef þeir eru íslenskir, þar sem þeir gera íslensku þjóðinni óbætanlegan skaða og skömm!
Ég hefði vonað að alþingismenn Íslands hefðu betra og þjóðþarflegra með tíma sinn og atorku að gera, en að taka upp hanskann fyrir fíknilyfjaglæpamenn!  Flestir morðingjar eru fíknilyfjaglæpamönnum skárri!
Þá er ég sérstaklega með alþingismenn stjórnarandstöðunnar í huga, sem hafa ekki beinlínis náð árangri í öllu því meini sem þjáir vora þjóð!  Að fólk með sómatilfinningu og fullu ráði sé að mæla fíknilyfjaglæpamönnum bót og miskunn er furðulegt svo vægt sé til orða tekið.  Nær væri að kalla það algjöra siðleysu og svik við grundvallar réttlætiskennd!
Kv.
Úlfur