Fara í efni

ÆTLAR ÞÚ AÐ LEGGJAST Á SVEIF MEÐ ÞEIM SEM ÆTLA AÐ HAFA SJÁVARAUÐLINDINA AF ÞJÓÐINNI?

Ágæti þingmaður. Nú þegar ríkisstjórnin ætlar að voga sér að opna frumvarp sem gengur í berhögg við 1 gr um stjórn fiskveiða og komið er í ljós að gengur einnig gegn lýðræðislegum rétti þjóðarinnar að setja og afnema lög ætlar þú þá að leggjast á sveif með mönnum sem eru tilbúnir hrifsa til sín öll réttindi yfir sjávarauðlindinni á kostnað þjóðarinnar? Eða ætlar þú að standa við bakið á þjóðinni sem enná ný á í þorskastríð? Stríði við vanþakklátt fólk sem kann ekki að meta að hafa þegið EINOKUN yfir sjávarauðlindinni í 30 ár.
Einar Már Gunnarsson


Sæll Einar Már.
Svarið er að ég mun ekki "leggjast á sveif með mönnum sem eru tilbúnir hrifsa til sín öll réttindi yfir sjávarauðlindinni á kostnað þjóðarinnar".
Ögmundur