Fara í efni

AÐ MISSA SJÁLFSTÆÐIÐ

Bankamennirnir okkar hafa orðið uppvísir að siðleysi, ábyrgðarleysi og hugsanlega enn verri hlutum. Nú á að verðlauna þá með því að treysta þeim fyrir sparisjóði barnanna okkar, lífeyrissjóðunum og ríkisábyrgðum lánum. "Pakkinn" er eittþúsundogfjögurhundruð milljarðar. Það eru fimm milljónir á hvert einasta mannsbarn á Íslandi. Þetta er tuttugu sinnum hærri upphæð en stóð svona lengi í bandaríska þinginu. Hvað hefðu þeir sagt ef lagður hefði verið fyrir þá 15000 milljarða dollara pakki í staðinn fyrir 700 milljarða.
Það á alls ekki að taka þátt í neinu því sem getur orðið til að hjálpa bönkunum sem er ekki hægt að bjarga. Hér er verið að fleygja peningum. Skuldunautar bankanna verða að taka á sig vanskil þeirra ef verða. Ekki íslensk þjóð. Hún einfaldlega getur það ekki. Þessi pakki mun ekki duga í meir en sex mánuði, mesta lagi í eitt ár, og þá mun þurfa annan skammt. Allt til að bjarga erlendum lánardrottnum og íslenskum auðmönnum.
Íslenska þjóðin hefur bara eitt vandamál. Krabbameinið sem eru "íslensku" bankarnir. Þetta eru aðgerðir byggðar á lygum og munu enda með því að við missum sjálfstæðið.

Hreinn K