Fara í efni

AÐ LABBA REST TIL STUÐNINGS NATÓ

Já, það er merkilegt hvað fólk getur þroskast illa með aldrinum eins og fram kemur í bréfi Sunnu Söru  um gamla Keflavíkur-göngugarpinn okkar hana Ingibjörgu Sólrúnu utanríkisráðherra. En hvernig væri nú að hún gengi síðasta spölinn frá NATÓ fundinum í Búkarest - þeas. frá einkaþotunni á Reykjavíkurflugvelli og upp í ráðuneyti - svona rétt til að minna landsmenn  á mikilvægi NATÓ og framgöngu þess, m.a. í Írak og Afganistan nú um stundir.
Sigurfljóð Hermannsdóttir