Fara í efni

AÐ GEFNU TILEFNI

Ráðherra forsætis rökin virði,
reglur gilda um frúna.
Faðmaði sjálf á Seyðisfirði,
en saklaus þykist núna.

„Fjöldi fólks reynir að komast í forgangshóp vegna bóluefnis“

Okkar heimur ætíð nýr,
aðrir sigla í brælu.
Dauðinn alltaf okkur flýr,
eilífð jarðarsælu.

Okkar lífsstíl allir þrá,
erum sæt og fín.
Viljum líka forgang fá,
fallega konan mín.
Kári