Fara í efni

126 ÁR AÐ VINNA UPP Í MORGUNVERK BANKASTJÓRA

Fréttabladid haus
Fréttabladid haus

Birtist í Fréttablaðinu 09.03.07.
Á fyrstu áratugum síðustu aldar tíðkaðist það fyrirkomulag á bátum og skipum að háseti fengi einn hlut, skipstjóri þrjá en stýrimaður, vélstjóri og kokkur voru þar á milli. Með öðrum orðum; tekjumunurinn var einn á móti þremur.
Ég veit ekki hvað sjómenn síðustu aldar hefðu sagt ef þeir hefðu heyrt um tekjuskiptinguna hjá íslenskum fjármálastofnunum nú um stundir. Til dæmis hjá Glitni. Þar átti einn forstjórinn viðskipti við sjálfan sig eina morgunstund fyrir fáeinum dögum. Þau viðskipti gáfu honum rúmar 380 milljónir í vasann. Morgunstund gefur gull í mund var einhvern tímann sagt.
Ekki veit ég nákvæmlega hvað almennir starfsmenn Glitnis fá í sinn hlut fyrir sín störf en hitt veit ég að það tæki einstakling með 250 þúsund króna mánaðartekjur 126 ár að vinna sér inn þessa upphæð. Þetta eru náttúrlega smámunir ef haft er í huga að viðkomandi forstjóri og hans nánustu félagar eiga rúma sex milljarða eignarhlut í sama fyrirtæki. Ég átti samtal við bankastjóra í öðrum banka fyrir fáeinum dögum. Ég spurði hvort það væri rétt að einn aðaleigandi þess banka hefði hagnast um milljarð á mánuði frá því ríkisstjórnin einkavæddi bankann og færði honum hann fyrir fáeinum árum. Viðmælandi minn sagði að þetta væri rangt. Upphæðin væri talsvert hærri.
Fjölmiðlar – með undantekningum þó - láta sér fátt um þessa þróun finnast þótt manna á milli sé þetta mikið rætt. En fáir láta sér lengur koma til hugar að gera samanburð á milli launaþróunar ofurlaunamannsins annars vegar og verkamannsins hins vegar. Getur verið að það sé vegna þess að menn telji aðstæður þeirra svo gjörólíkar, að þeir séu hreinlega ekki af sama heimi?
Ef svo er þá erum við komin ansi langt frá hlutaskiptum fyrri tíðar. Við erum þá ekki lengur á sama bátnum, ein þjóð í einu landi, heldur tvær óskyldar þjóðir.
Íslenskt þjóðfélag hefur tekið miklum breytingum á hálfum öðrum áratug. Þegar ég kemst svo að orði minnir ein ágæt vinkona mín mig jafnan á, að þjóðfélagið hafi ekki breyst af sjálfu sér – því hafi verið breytt. Það séu gerendur þar á bak við.
Hyldjúp gjá á milli þjóðfélagshópa er birtingarmynd þessara breytinga. Skyldu þeir stjórnmálaflokkar sem eru valdir að því að sundra samfélaginu vera ánægðir með morgunverk sín?