Fara í efni

VILJUM VIÐ AÐ FRIEDRICH MERTZ VÍSI OKKUR VEGINN?

Á meðal vinstri manna er vaxandi áhugi á því að kynna sér utanríkisstefnu Evrópusambandsins vitandi að gerðist Ísland aðildarríki sambandsins yrði mótun stefnu í utanríkis- og hermálum ákveðin í Brussel.
Augljóst er að þar myndu stærstu ríkin öllu ráða. Við það hljóta augu manna að beinast að Frakklandi, Ítalíu, Spáni og þá ekki síst Þýskalandi sem hervæðist nú sem aldrei fyrr. Engu líkara er en að hergagnaiðnaðuirnn hafi þar tekið völdin enda var núverandi kanslari, Friedrich Merz, lengi vel einn innsti koppur í búri alþjóða auðvaldsins, m.a. sem stjórnarformaður BlackRock í Þýskalandi, einhverrar stærstu en jafnframt alræmdustu fjárfestingarkeðju heims, höfundur bóka þar sem hvatt er til þess að hleypa fjármagninu sem víðast að, Mehr Kapitalismus wagen, var titill einar slíkrar bókar. Eins og gera má ráð fyrir vill Merz öflugan Evrópuher. Þetta nefni ég til að minna á félagsskapinn sem við yrðum í næðu áform Viðreisnar um að gera Ísland að aðildarríki Evrópusambandsins fram að ganga.

Á vefmiðlinum Neistum er athyglisverð úttekt á hervæðingu Þýskalands, hvernig Þjóðverjar eru farnir að nýta sér Úkraínu sem tilraunastofu í smíði drápstóla undir forystu Merz kanslara. Ég hvet lesendur til að kynna sér þessa úttekt en þar kemur fram hve nærri NATÓ ríkin eru við það að kynda undir allsherjarstríð í Evrópu. Í þessari úttekt er minnt á sögu Rússlands í viðureign Sovétríkjanna við Þýskaland nasismans en sú saga er ekki gleymd þar austur frá: https://neistar.is/greinar/thyskaland-tilraunastofa-fyrir-ukrainustrid-og-herfylkingarvollur-fyrir-endalaust-strid-gegn-russlandi/

„Um 27 milljónir Sovétmanna létust í seinni heimsstyrjöldinni, flestir þeirra óbreyttir borgarar. Um 11 milljónir fallinna klæddust einkennisbúningi Rauða hersins. Sú tala er svo há að hún getur misst alla merkingu þegar henni er varpað inn í vestræna umræðu og er látin eiga sig. Í Rússlandi varð þessi harmleikur aldrei afstrakt og lifir í minningu fjölskyldna, á ljósmyndum af mönnum sem aldrei komu heim, í skólaathöfnum, í sigurdagsskrúðgöngum og í nöfnum sem rist eru á minnisvarða í þorpum frá Smolensk til Volgu. Þegar rússneskir ráðamenn horfa á bæverska verksmiðju hjálpa til við að auka framleiðslu á langdrægum drónum til notkunar gegn skotmörkum á rússnesku landsvæði, eru þeir ekki að bregðast við einhverri fantasíu um endurvaktar Wehrmacht-hersveitir sem velta austur. Þeir sjá þýskan iðnað tengdan, enn og aftur, kerfum sem eru hönnuð til að drepa Rússa á þeirra eigin grund.“

Ég hvet alla til þess að lesa þessa grein frá upphafi til enda: https://neistar.is/greinar/thyskaland-tilraunastofa-fyrir-ukrainustrid-og-herfylkingarvollur-fyrir-endalaust-strid-gegn-russlandi/

--------------

Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.

Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course:
https://www.ogmundur.is/

(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.

To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)